A conclusion is simply the place where you got tired of thinking

Beibs and Bitches!!

20.01.2008 19:34:28 / nanna

Nýársátak :D

Jæja stelpur hvernig væri að blása smá lífi í þetta blogg okkar aftur? Segja aðeins frá því sem helst hefur drifið á daga okkar, hverjar eru með barni, eiga börn, eru giftar og fleira í þeim dúr:D Við erum bara 7 með aðgang að síðunni og eigum við ekki að reyna að vekja þær sem hafa ekki aðgang og vita kannski ekki af síðunni? Við erum: Nanna, Mæjabet, Eva María, Tóta, Hrönn, Sigrún Ella og Lovísa:D hinar hafa ekki aðganginn en það er auðvelt að bæta ykkur við. Þannig að nú er átak...allar að setja eitthvað um sig hér inn:D jei


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 20:01:57 / nanna

keep at it

Ekki gefast upp Eva8| Maður verður para að copy-a áður en maður staðfestir svona just in case. Þetta er sniðugt hjá þér. Hvað er að frétta af mér linkur. Endilega stelpur geriði líka svona, útdrátt yfir það sem þið hafið gert síðan 17. júní 2001. Ef þið kunnið ekki að gera svona link sendiði þá bara póst á mig og ég skal koma því inn:D

Ég fer líka bráðum að haska mér í að setja fleiri Carmínu greinar inn:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 17:51:40 / nanna

Hér hafiði það:D

Ummæli nokkurra kennara um reynslu sína af bekknum

 

 



Babes or bitches?

That’s the question. Jú, víst er þetta indælasti stúlknabekkur sem ég hef kennt en um leið geta þetta verið bölvaðar tæfur. Ég hef örugglega fölnað, roðnað, bliknað og blánað í tíma hjá þeim enda frásagnir þeirra oft æði krassandi.

-Stefán Þór Sæmundsson.

 

 



Je me suis quelque fois pose la question si c’étaient vraiment de filles…et le Lundi matin…les histories. Je remercie 4B pour trios années ensemble, c’étaient des filles superbes.

-Örn Þór Emilsson.

 

 



A heterogeneous lot.

Unusually bright back rows. Sensitive to cold air in classrooms. A promising sample of Icelandic womanhood. Occasional tendancies to giggling.

-Rafn Kjartanson.

 

 



Litrík blanda góðra kvenna.

Allt í senn skellibjöllur, rólegheitakonur og námshestar. Það er oft glatt á hjalla og mikið spjallað-um hitt kynið! Ég gleymi aldrei þessum dömum sem svo sannarlega eru með munninn fyrir neðan nefið. Megi ykkur farnast vel og takk fyrir allt!

-Harpa Sveinsdóttir

 

 



 

 



Bekkjarljóðið

Þegar sólin syndir til mín

brosir máninn við mér

þá vil ég fljóta til þín

og njóta ásta með þér.

 

 



Taktu mig þú föli máni

ég er bara saklaus kjáni

en þú ert nú soddann bjáni

enda heitir þú Stjáni

auminginn þinn!


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 15:27:38 / nanna

Svona er maður gleyminn

Ég var auðvitað löngu búin að gleyma því að bekknum var skipt í tvennt þegar við fórum í tjáningu8) Sorry girlies sem ég gleymdi. Eru nokkuð ljóð eða eitthvað svoleiðis úr þeim helmingi? Ég man gróflega hverjar voru í mínum helmingi... getiði hjálpað mér með þetta? Er þessu rétt skipt svona? Við vorum líka fleiri þá..hjálp8|

*       Berglind Mari

*       Elsa Sif

*       Eva María

*       Guðrún Jóna

*       Heiðdís Halla

*       Helen

*       Hrönn

 

*       Katrín Björk

*       Lovísa Þóra.... var ekki

*       María Guðbjörg

*       María Elísabet

*       Nanna Hólm

*       Sara Blandon?

*       Sigrún Ella

*       Tinna

*       Þórunn Kristín


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 20:24:37 / nanna

Gleði gleði:D

Hæ stelpur ég er rosaglöð að ykkur skuli líka síðan:D Mæjabet og Eva María eru komnar með aðgang að síðunni, endilega hafiði samband og fáiði aðgang það er mjög auðvelt. Ef ykkur langar að setja myndir hingað inn en nennið ekki að standa í því að skanna inn og svoleiðis þá er ég meira en til í að gera það. Ljóðin sem eru komin inn voru á tölvutæku formi frá því fyrir nokkrum árum að ég ætlaði að gera eitthvað svona en svo varð ekkert meira úr því. Ég hef mikið fleiri ljóð sem eiga eftir að komast inná síðuna en það var María Guðbjörg sem safnaði þeim saman og lét mig hafa þegar ég var að reyna að gera síðu fyrir okkur í 4. bekk. Ljóðin eru úr tjáningu, muniði ekki við fengum orð sem við áttum að semja ljóð um. Mig minnir að eitt orðið hafi verið blátt:D

hafiði samband nannsla@gmail.com og ég gef ykkur aðgang á no time:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 19:37:40 / nanna

17. júní 2001

tskrift


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 19:10:33 / nanna

Blggið okkar???

Hvernig væri að hafa þetta að síðunni okkar?? Hér er hægt að hafa fleiri en einn notanda og hægt að setja inn helling af myndum?

Mig langar að setja inn Carmínugreinarnar okkar og myndirnar líka. Gömul ljóð eftir okkur og svona. Hvernig líst ykkur á????? 


» 3 hafa sagt sína skoðun


Síðast inni
Ég var síðast inni þann 20 janúar
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Klukkan